4/03/2013

Aspargræðlingar

Nokkrar stelpur í útivist klipptu asparsprota og settu í vatn til að fá rætur.  Síðan eru þeir settir í bakka og vökvað og fylgst með þeim.  Í byrjun Júní verða bakkaplönturnar svo gróðursettar í reitinn okkar.  Alls 105 aspir.


9/06/2012

Að tína birkifræ

Nú er tíminn til að tína "birkiköngla" af birkitrjánum.  Gott er að velja beinvaxin og falleg tré því líklegt er að eiginleikar "móðurtrésins" erfist.  Gott er að tína fullt af könglum og snúa létt upp á þá yfir skál.  Þá losna fræin af.

Ég vil hvetja íbúa Áslands að tína köngla og dreifa svo fræjunum á gróðurlausum melum í kringum Ásfjallið.  Það er jú gott að fá birkið í stað lúpínunar.  Ef þið viljið nánari ráðgjöf þá er hægt að senda mér línu á einarbjarna@aslandsskoli.is.

Ég fór með hóp af stelpum í útivistarlotum að tína fræ og dreifa.


Kv. þangað til næst

7/03/2012

Skógrækt hafin í Áslandi.

Á vordögum hófu nemendur Áslandsskóla skógrækt við Ásfjall, á svæðinu ofan við Þrastarás.  Leyfi fékkst frá Hafnarfjarðarbæ fyrir því að Áslandsskóli fengi að búa til grenndarskóg á þessu svæði.



Nemendur í unglingadeild gróðursettu 140 plöntur, 35 stk. stafafuru, 35 stk gráelri, 35 stk birkiplöntur og að lokum 35 stk reynitré.







Mikið er um lúpínu á svæðinu sem hefur bæði kosti og galla í för með sér.  Hún gerir jarðveginn frjósamari og    að því leyti er hún að vinna með okkur í að græða landið en að sama skapi er hún ansi aðgangshörð og plássfrek.  En með tíð og tíma er plönturnar okkar vaxa upp og það þéttist milli trjáa þá mun lúpínan hörfa enda ekki skuggþolin.

Við munum setja hér inn myndir og texta um starfið og kannski einhvern fróðleik sem við finnum.

Þangað till næst....kær kveðja.